Þjónusta

Við bjóðum uppá alhliða bókhaldsþjónustu, launavinnslu,
ársreikningagerð og skattauppgjör og almenna viðskiptaráðgjöf.

Bókhaldsþjónusta

Tökum að okkur alhliða bókhalds- og uppgjörsþjónustu fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki . Við sjáum um færslu bókhalds, útgáfu reikninga, afstemmingar og árshlutauppgjör. Við færum bókhald allajafna í DK-hugbúnaði en aðlögum okkur að óskum og þörfum hvers og eins. Bjóðum einnig upp á að koma og sækja bókhaldsgögnin.

  • Færsla bókhalds
  • Skipulagning bókhalds
  • Reglulegar afstemmingar
  • Komum og sækjum bókhaldsgögnin

Launavinnsla

Laun eru trúnaðarmál og er fjöldi fyrirtækja sem sér hag sinn bestan í að úthýsa launavinnslunni. Við tökum að okkur allt utanumhald um launavinnsluna. Þú sendir okkur upplýsingar um vinnu hvers starfsmanns, við reiknum út launin og sendum út launaseðilinn. Skilum skilagreinum staðgreiðslu, tryggingargjalds og skilagreinum til lífeyrissjóða og stéttarfélaga rafrænt.

  • Launaútreikningur
  • Sendum út launaseðilinn
  • Sendum út árlega launamiða
  • Rafræn skil á skilagreinum

Ársreikningagerð og skattauppgjör

Útbúum ársreikninga fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki ásamt því að sjá um gagnaskil til ársreikningaskrár. Leggjum mikla áherslu á að fara yfir ársreikninginn með eigendum, kanna möguleikann á úrbótum og jafnframt benda á það sem vel er gert. Útbúum skattframtal og skilum til skattayfirvalda.

  • Gerð ársreikninga og árshlutareikninga
  • Skoðunarmenn ársreikninga
  • Tillögur að úrbótum
  • Skil á gögnum til ársreikningsskrár
  • Gerð skattframtala og gagnaskil til skattayfirvalda
  • Samskipti við skattayfirvöld
  • Virðisaukauppgjör
  • Skattaráðgjöf

Viðskiptaráðgjöf

Ef þú ert í atvinnurekstri, á leiðinni í atvinnurekstur eða einfaldlega með góða hugmynd, getum við aðstoðað þig við að taka hana lengra. Bjóðum upp á ýmsa ráðgjöf og aðstoð eins og við gerð viðskiptaáætlana, rekstraráætlana eða samninga og samskipti við lánastofnanir.

  • Gerð viðskiptaáætlana
  • Samskipti og samningar við fjármálastofnanir
  • Greining ársreikninga
  • Hagnýt ráðgjöf