Bókhaldsþjónusta

Tökum að okkur alhliða bókhalds- og uppgjörsþjónustu fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki . Við sjáum um færslu bókhalds, útgáfu reikninga, afstemmingar og árshlutauppgjör. Við færum bókhald allajafna í DK-hugbúnaði en aðlögum okkur að óskum og þörfum hvers og eins. Bjóðum einnig upp á að koma og sækja bókhaldsgögnin.

Launavinnsla

Laun eru trúnaðarmál og er fjöldi fyrirtækja sem sér hag sinn bestan í að úthýsa launavinnslunni. Við tökum að okkur allt utanumhald um launavinnsluna. Þú sendir okkur upplýsingar um vinnu hvers starfsmanns, við reiknum út launin og sendum út launaseðilinn. Skilum skilagreinum staðgreiðslu, tryggingargjalds og skilagreinum til lífeyrissjóða og stéttarfélaga rafrænt.

Ársreikningagerð og skattauppgjör

Útbúum ársreikninga fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki ásamt að sjá um gagnaskil til ársreikningaskrár. Leggjum mikla áherslu á að fara yfir ársreikninginn með eigendum, kanna möguleikann á úrbótum og jafnframt benda á það sem vel er gert. Útbúum skattframtal og skilum til skattayfirvalda.

Viðskiptaráðgjöf

Ef þú ert í atvinnurekstri, á leiðinni í atvinnurekstur eða einfaldlega með góða hugmynd þá mögulega getum við aðstoðað þig með að taka hana lengra. Bjóðum upp á ýmsa ráðgjöf og aðstoð eins og við gerð viðskiptaáætlana, rekstraráætlana eða samninga og samskipti við lánastofnanir.

Hafa samband

Ef þú hefur áhuga á að koma í viðskipti eða vantar frekari upplýsingar um okkur eða þjónustuna sendu okkur þá fyrirspurn eða hafðu samband. Við svörum spurningum þínum með ánægju eins fljótt og við verður komið.